Sambíóin Icon
Download Sambíóin

Sambíóin

Hér geturðu keypt bíómiða auk þess sem þú færð allar helstu upplýsingar um bíó á Íslandi; sýningartíma, hvað er væntanlegt, myndbrot úr myndum, tilboð í bíó/sjoppu, boð á forsýningar/frumsýningar. Einnig er hægt að spila margvíslega bíóleiki þar sem vinningarnir eru ekki af verri endanum.
Category Price Seller Device
Entertainment Free TC TECH OU iPhone, iPad, iPod

Reviews

Innskráningarvesen
Sigrún María

Sama hvað ég reyni get ég ekki skráð mig inn, breytti lykilorðinu mínu til að sjá hvort það myndi virka en það breytti engu. Þangað til þetta er lagað get ég ekki mælt með þessu appi


Virkar ekki
HimalCheese

Ekki hægt að skrá sig inn með notendanafni.


Drasl
Dibbzella

Ég er nokkuð viss um að það sé ekki hægt að vinna í þessu lukkuhjóli þar sem allir sem eg þekki með þennan leik lenda alltaf á sama litnum


Óþolandi
Daniel.tryggvi

Þoli ekki svona "leiki" eins og þetta hjól þar sem verið er að likja eftir einhverju raunverulegu svo maður fái á tilfinninguna að það séu ágætis vinningslíkur en svo bara "óvart" lendir hjólið ALLTAF á samalitnum og þú vinnur ekki "blíp"-gat. Ef þið þarna hjá Sambíónum eruð svona æst í að fá fólk til að nota þetta app hvernig væri þá að verðlauna þá sem eru fljótir til að pikka upp þennan nýja möguleika og eru líklegir til að breiða út boðsskapinn í staðinn fyrir að pirra þá bara með einhverjum rugl leikjum sem virka bara fake og fá mann bara til þess að vilja að delete-a þessu appi beint í ruslið.


Nei ekki að gera sig
Kasna80

Skrítið að maður skuli alltaf lenda á Gulum og alltaf i miðjum litnum, það er ekki hægt að vinna i þessum lukkuhjólsleik!!!


Njeeeeeee
Jóben

Ágætis app, fínt til að skoða myndir og trailera og hvað er í bíó , movie quis er alveg skemmtilegt en þetta lukkuhjól er mjög óþolandi og leiðinlegt!!!! Alltaf lendir maður á gula reitnum og í staðinn fyrir að snúa sjálfur þá ýtir maður á reit og það snýst alltaf á gullt ?? sleppa þessu lukkuhjóli og þá er þetta ágætt :)


Svindl
Robertnokk

Þetta lukkuhjól er bara algjört svindl, tok eftir þegar það var að hægja á sér og leit u fyrir að það myndi stoppa á græna en nei nei það helt bara afram a sama hraða og stopaði svo a ljosgula sem þiðir engin vinningur. Drasl. Annars agætt.


Lélegt app
R.G.Guð.

Appið er í raun tilgangslaust enda er ekki hægt að kaupa miða í því heldur er maður sendur á vefsíðuna. Viðmótið er ljótt, illa uppsett og flókið. Í þokkabót neitar appið að skrá mig inn.


Rusl
Olafur.23

Ekki hægt að skrá sig inn, lukkuhjólið er svindl þú vinnur aldrei það er ekkert gott hægt að seija um þetta. þar til þeir girða upp um sig og laga þetta um eg aldrei nota þetta app eða mæla með því


Bara ef hægt væri að gefa enga stjörnu
Gudvardur

1) Ekki sama notendanafn og á vefnum hjá þeim = fail (ég er ekki að fara stofna mig tvisvar sem notanda hjá Sambíóunum) 2) Að óska efir því að fá að vita um staðsetningu mína og rökin fyrir því séu "svo að við vitum hvar þú ert" = big fail Þetta fékk mig til að eyða appinu út strax.


Featured on lists